Hugleiðum list í hádeginu - tilraunakennd leiðsögn - Eventa
List & menning
Hugleiðum list í hádeginu - tilraunakennd leiðsögn
Dagsetning
þriðjudagur, 13. maí
Tími
12:10
Um viðburðinn
Annan þriðjudag í hverjum mánuði kl: 12:10-12:50 er boðið upp á stutta og tilraunakennda leiðsögn í Listasafni Einars Jónssonar. Sérfræðingar safnsins taka á móti gestum og rýna í eitt eða fleiri listaverk þar sem ýmislegt tengt arfleið safnsins er skoðað með hæglæti að leiðarljósi. Markmiðið er að velta upp…
Staðsetning
Listasafn Einars Jónssonar / The Einar Jónsson Sculpture Museum
Listasafn Einars Jónssonar / The Einar Jónsson Sculpture Museum, Njarðargata, Reykjavík, Iceland
List & menning
Þri 13 maí • 12:10
Hugleiðum list í hádeginu - tilraunakennd leiðsögn
Listasafn Einars Jónssonar / The Einar Jónsson Sculpture Museum
Annan þriðjudag í hverjum mánuði kl: 12:10-12:50 er boðið upp á stutta og tilraunakennda leiðsögn í Listasafni Einars Jónssonar. Sérfræðingar safnsins taka á móti gestum og rýna í eitt eða fleiri listaverk þar sem ýmislegt tengt arfleið safnsins er skoðað með hæglæti að leiðarljósi. Markmiðið er að velta upp spurningum í óformlegu spjalli sem varpa mögulega ljósi á óvænta þræði og tengingar. Áhersla er lögð á sjónræna nálgun og tilraunir gerðar með aðferð sjónrænnar hugsunar á söfnum (e. Visible Thinking in the Museum VTM). Aðferðin er leið til að skoða, lýsa og túlka listaverk gegnum myndlæsi í þeim tilgangi að öðlast dýpri skilning á þeim. Aðgangseyrir að safninu og árskort gildir sem aðgöngumiði í leiðsögn.