Heimurinn heima er skapandi smiðja frá Hönnunarsafni Íslands þar sem börn setja sig í spor hönnuða og vinna í sameiningu að híbýli fyrir ímyndaðan íbúa.
Í smiðjunni kynnast börn grunnhugtökum í innanhússhönnun og eiga samtal um heimili. Við fáum aðgang að „nammibar“ – stútfullum af girnilegum efnivið sem nýta má í módelgerð.
Þátttakendur þjálfast í hugarflugi og að útfæra hugmyndir sínar í skala. Síðast en ekki síst æfa börnin skapandi og lausnamiðaða hugsun í samtali og samvinnu.
Þátttakendum er skipt í hóp og vinnur hver hópur að heimili fyrir geimfara sem hefur áhuga á kökubakstri og á 3 kanínur sem gæludýr.
Skráning á smiðjuna er hér að neðan
https://forms.cloud.microsoft/e/2Wr92VV19V
Við hlökkum til að vinna með ykkur!