Í tilefni af lokum rannsóknarverkefnisins Aðdráttarafl arfleifðar og staðartengsl í borgarlandslagi (Hauntɘd) efnum við til málþings.
Í verkefninu er sjónum beint að tengslum fólks við staði og byggingar fortíðar í borgarlandslagi Reykjavíkur. Sérstök áhersla er lögð á hvernig minningar, skynjun og tilfinningar móta þessi tengsl og þá merkingu sem staðirnir hafa fyrir fólk.
Á Hauntɘd-vökunni munu rannsakendur kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar.
Einnig verður sýnd heimildamyndin Borgin mín: Skynjun, minningar og frásagnir í borgarlandslagi, sem byggir á rannsókninni.
Léttar veitingar.
Verið hjartanlega velkomin