*Ertu með eitthvað á prjónunum? Ertu að hekla fallegt sjal eða sauma út púða? Á fimmtudögum kl. 13:30-14:30 er hannyrðastund í Spönginni. Öll velkomin, byrjendur og lengra komin, í notalega stund í blágrænu sófunum á annarri hæð. Við spjöllum um daginn og veginn, fáum okkur kaffi og sinnum handavinnunni í góðum félagsskap. Við eigum líka mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim. Sjá nánari upplýsingar um hannyrðastundir á söfnunum okkar:
https://borgarbokasafn.is/hannyrdastundir