Hádegishittingur með hönnuði - Hringur Hafsteinsson - Eventa
Menntun
Hádegishittingur með hönnuði - Hringur Hafsteinsson
Dagsetning
miðvikudagur, 14. maí
Tími
12:15
Um viðburðinn
Hringur Hafsteinsson er listrænn stjórnandi og einn af stofnendum Gagarín sem sérhæfir sig í skapandi lausnum til að miðla fróðleik af ólíkum toga til dæmis fyrir söfn, áfangastaði og sýningar. Hringur mun fjalla um hvernig Gagarín nálgast ólík verkefni – allt frá fyrstu hugmynd að fullmótuðu verki – og deila aðferðum…
Staðsetning
Hönnunarsafn Íslands
Menntun
Mið 14 maí • 12:15
Hádegishittingur með hönnuði - Hringur Hafsteinsson
Hönnunarsafn Íslands
Hringur Hafsteinsson er listrænn stjórnandi og einn af stofnendum Gagarín sem sérhæfir sig í skapandi lausnum til að miðla fróðleik af ólíkum toga til dæmis fyrir söfn, áfangastaði og sýningar. Hringur mun fjalla um hvernig Gagarín nálgast ólík verkefni – allt frá fyrstu hugmynd að fullmótuðu verki – og deila aðferðum sem hópurinn notar í hönnunarferlinu. Hann mun einnig sýna fjölmörg dæmi af innsetningum og sýningum sem takast á við margvísleg viðfangsefni og sýna hvað efnistökin eru ólík eftir samhengi og umfjöllunarefni þeirra. Boðið er upp á kaffi og kleinur. Frítt er inn á viðburðinn.