Að fjárfesta í virðisfélögum eða vaxtarfélögum Það er grundvallarmunur á því að fjárfesta í hlutabréfum virðisfélaga (e. value stocks) og vaxtarfélaga (e. growth stocks). Virðisfélög eru oft rótgróin fyrirtæki sem greiða reglulega arð á meðan vaxtarfélög leggja fyrst og fremst áherslu á vöxt. Hvor flokkurinn fyrir sig getur boðið upp á góða ávöxtun, við réttar aðstæður. Til að ræða í hverju munurinn felst og hvernig fjárfestar ættu að nálgast fjárfestingar í slíkum fyrirtækjum ætlar Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, að taka stöðuna með Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Símans og Páli Ragnari Jóhannessyni, framkvæmdastjóra viðskipta hjá Oculis, á opnum veffræðslufundi í hádeginu 14. maí, kl. 12.00 - 13.00. Hægt verður að senda inn spurningar á Magnús, Maríu og Pál á meðan á fundi stendur. Hlekkur á viðburðinn kemur hér síðar.