📯 Kunnugt gjörist 📯 Kammerkórinn Huldur heldur fjáröflunartónleika í Hallgrímskirkju 11. maí næstkomandi, klukkan 16:00. Tónleikarnir verða opnir öllum, aðgangur ókeypis en kórinn tekur við öllum frjálsum framlögum af dýpsta þakklæti. Tilefni söfnunarinnar er ferðalag kórsins á kórahátíð í Sviss í lok maí sem og hljómplata með nýrri íslenskri kórtónlist sem er í bígerð. Kórinn lætur svo sannarlega hendur standa fram úr ermum og hefur hann helgað síðustu misserum til undirbúnings á 27 verka efnisskrá fyrir ferðina til Sviss. Hluti þeirrar efnisskrár verður fluttur í Hallgrímskirkju, þar á meðal frumflutningur á nýrri kórútsetningu eftir Snorra Sigfús Birgisson, ‘Klukka Íslands’ Huga Guðmundssonar, ‘Heyr þú oss himnum á’ eftir Önnu Þorvaldsdóttur, verk eftir meðlimi kórsins, kamerúnskt þjóðlag og margt fleira. ⚖️ Svissferðin mikla hefst í Basel. Þar mun Huldur stíga á stokk á Hátíð evrópskra ungmennakóra (EJCF). Hundruðir barna- og ungmennakóra um allan heim sækja um að hverju sinni til að taka þátt í hátíðinni og komast aðeins um 18 evrópskir kórar (þar af þriðjungur ávallt svissneskir kórar) ásamt einum utan úr heimi. Opnunarathöfn hátíðarinnar verður 28. maí í Evróvisjónhöllinni í Basel (st. Jakobshalle) og stendur hátíðin yfir 5 daga. 🗿 UM HÁTÍÐINA 🗿 Fyrsta Hátíð evrópskra ungmennakóra var haldin í Basel árið 1992 og þar til ársins 2010 var hún haldin á þriggja ára fresti. Miklar vinsældir hátíðarinnar leiddu til þess að hún er nú haldin annað hvert ár, og árið 2025 verður hún haldin í fjórtánda skiptið. Hátíðin er vettvangur fyrir tónleika og sameiningarstaður fyrir barna- og ungmennakóra af hæsta gæðastaðli. Tilgangur hátíðarinnar er að sameina fólk, þvert á landamæri og að víkka sjóndeildarhringinn. Huldur er þriðji íslenski kórinn sem fær boð á hátíðina: barnakór Kársness fór 2004 og Hamrahlíðarkórinn 2014. ⚙️ UM PLÖTUNA ⚙️ Um þessar mundir vinnur kórinn að hljómplötu í fullri lengd, með styrk frá upptökusjóði Tónlistarmiðstöðvar og Stefs. Upptökustjóri þessa ferlis er sending frá himnum að nafni Þorgrímur Þorsteinsson. Á plötunni verða ný kórverk eftir Hauk Tómasson, Huga Guðmundsson og átta meðlimi kórsins ásamt ýmsum kórdjásnum sem enn hafa ekki verið hljóðrituð, t.d. eftir Jón Ásgeirsson og Snorra Sigfús Birgisson. Platan er væntanleg að næsta vori. ⚔️ UM KÓRINN 🛠️ Huldur var stofnuð af Hreiðari Inga Þorsteinssyni, að hausti 2021 og er nafnkostur kórsins huldurin (sem beygist eins og Hildur/brúður). Huldurin er kynjavera sem býr í fossum, lindum, lækjum og í djúpum hafsins, saumar sólarljós í döggina og í fossana og knýr gjálfur aldanna fram með langspili sínu, eða eitthvað þvíumlíkt. Kórinn hefur haldið fjölda tónleika og frumflutt öróf íslenskra kórverka á skammri ævi sinni. Innan Huldar morar allt í ungum skúffuskáldum og hefur kórinn verið góður vettvangur fyrir ung og upprennandi tónskáld, ljóðskáld, einsöngvara, hljóðfæraleikara og þá sem hafa áhuga á kórstjórn til að spreyta sig og rækta áhuga sinn og kunnáttu. Kórstjóri og listrænn stjórnandi Huldar er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Við hlökkum svo innilega til að sjá ykkur 11. maí ⏳ Slagorð tónleikanna er: frítt inn; kostar út.