Michelle Bird opnar sýningu sína
Eins og fiskur á þurru landi
í Gallerí Gróttu
fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17. Opnuninni fylgir hún eftir með listamannaspjalli
sunnudaginn 8. nóvember kl. 12.Michelle hefur sýnt víða um Evrópu og í Bandaríkjunum, auk þess að halda fyrirlestra og leggja stund á list. Hún hefur komið að ótal listtengdum störfum og viðburðum og má þar nefna Verkefni í List fyrir alla, listasmiðjur ýmsar bæði hér á landi og erlendis.Á sýningunni
Eins og fiskur á þurru landi
má sjá lífleg og fjölbreytt listaverk unnin með ólíkum miðlum, þar á meðal olíu-, akrýl- og vatnslitum, auk Riso-prenta og annarra tjáningarforma.Meðfylgjandi eru myndir af verkum, listakonunni og fréttatilkynning.