Eldmóðir – Lokatónleikar vetrarins með Cauda Collective í HannesarholtiCauda Collective lýkur tónleikaröð sinni Eldblik í Hannesarholti með kraftmikilli tónlistarupplifun undir heitinu Eldmóðir föstudaginn 16 maí kl. 20:00.Á efnisskránni eru fjögur áhrifamikil verk sem öll fjalla um móðurhlutverkið í ýmsum myndum. Verk tónleikanna fjalla um missi og átök, söknuð, ást og nærveru – allt frá nýfæddu barni á móðurbrjósti, til þunguðu konunnar sem stendur frammi fyrir sársaukafullum sannleika.Efnisskrá kvöldsins:Sóley Stefánsdóttir: Parasite – fyrir sópran og víóluSveinn Lúðvík Björnsson: ...og í augunum blik minninganna – strengjakvartett samin í minningu Margrétar Halldóru Hallgrímsdóttur móður höfundarÞuríður Jónsdóttir: INNI – hljóðheimur mótaður af upptökum af nýbura að næra sig Arnold Schönberg: Verklärte Nacht – dramatískur strengjasextett eftir ljóð um ást, sekt og fyrirgefninguEldmóðir er óður til móðurinnar – til þeirra tengsla sem krefjast bæði hugrekkis og hlýju. Hjartanlega velkomin í Hannesarholt.