Hvað ef draumarnir okkar hafa meira að segja okkur en við gerum okkur grein fyrir?
Á hverri nóttu ferðumst við inn í heim þar sem allt er mögulegt.
Við upplifum ævintýri, hittum fólk, heimsækjum ókunnuga staði og finnum tilfinningar sem geta fylgt okkur langt inn í daginn.
En hversu oft gefum við okkur tíma til að staldra við og hlusta á það sem draumarnir okkar hafa að segja?
Persónulega er ég hugfangin af draumum. Síðustu ár hef ég skráð niður drauma mína og unnið að því að skilja betur draumaheim minn og tengja hann við vakandi líf mitt. Á þeirri vegferð hef ég sankað að mér ýmsum fróðleik og því langar mig að bjóða í draumahring þar sem ég mun deila ýmsu sem ég hef lært um drauma, draumavinnu og hvernig við getum byggt upp meðvitaðra samband við drauma okkar. Við munum líka prófa einfaldar og skemmtilegar æfingar sem geta hjálpað okkur að kanna okkar eigin drauma og uppgötva nýjar hliðar á þeim.
Í þessari kvöldstund fáum við okkur kakóbolla og/eða te, fáum tækifæri til að deila draum og könnum hvernig við getum nýtt drauma sem leið til sjálfsþekkingar, innsæis og sköpunar.
✨Þessi kvöldstund er fyrir þá sem hafa áhuga á að:
🌙Muna drauma sína betur og einfaldar aðferðir til að vinna með þá
🌙 Kanna tákn, tilfinningar og tengsl draumanna við okkar daglega líf.
🌙 Deila draumum og vinna með þá í hóp
🌙 Skoða hvernig við getum heiðrað drauma okkar og tekið innblástur þeirra með okkur inn í vakandi lífið.
🌙Víkka sjóndeildarhringinn & auðga ímyndunaraflið
Þú þarft enga fyrri reynslu af draumavinnu til að taka þátt. Hvort sem þú manst draumana þína á hverri nóttu, manst þá sjaldan eða ert einfaldlega forvitin/n um þennan dularfulla heim, þá ertu hjartanlega velkomin/n.
💫PRAKTÍSKU ATRIÐIN:
📅 Dagsetning: fimmtudaginn 12. nóvember
🕰 Tími: 19:00
📍 Staðsetning: Úlfarsárdalur (þátttakendur fá nákvæma staðsetningu senda)
🤎 Verð: 6.900kr (kakóbolli innifalinn)
🌙 Takmarkaður fjöldi þátttakenda
Skráning: skilaboð á fb eða info.risenthrive@gmail.com
Ég hlakka til að eiga dreymandi kvöldstund með ykkur 🤎