Verið velkomin á opnun og sýningu Darju Shatalova og Agnesar Ársælsdóttur 15. maí kl 17-19! Hlökkum til að sjá ykkur! Sameiginleg sýning Agnesar og Darju í Gallery Kannski er staðsett í margslungri umræðu um gagnakerfi, minningar og form efnis. Þrátt fyrir að nota ólíkar í aðferðir og áherslur eru umhugsunarefni þeirra þau sömu: fagurfræði hnita, arkítektúr, kóða, og möguleikinn á því að kortleggja bæði hins nálæga og útþanda heims. Verk Darju spretta úr persónulegu skjalasafni - skrásetningu á símtölum sem hún átti í liðnu sambandi. Í gegnum nákvæm ferli hennar breytast þessi hverfulu ummerki í teikningar á flötum úr gegnsæju efni sem líkjast landslagi eða sýn úr smásjá og þeim stærðfræðilegu munstrum sem felast í náttúrunni. Atmospheric hljóðverk og bókverk í takmörkuðu upplagi teygir rannsóknina þvert á miðla og býður upp á fjölskynja leiðir til þess að endurhugsa gögn sem reynslu. Agnes beinir sjónum að tengslum milli innviða og hinum meira-en-mennska heimi, einkum snertiflatarins á milli náttúrulegs landslags og manngerðra kerfa. Með aðferðum krosssaums yfirfærir hún senur frá fyrstu stórvirkjun Íslands, Búrfellsvirkjun, í kerfisbundin mynstur, í pixlum og saumsporum. Með því undirstrikar hún spennuna milli hins óhlutbundna í stafrænunni og hins líkamnaða í handverki veltir Agnes fyrir sér hvernig innviðir eru mótaðir og móta umhverfi siit. Í sýningarrýminu komast verk þeirra í ómun, svæði þar sem yfirfærslur verða bæði að aðferðum og myndlíkingum. Kóðar, hnit og goðsagnir eru ekki aðeins tól til stjórnunar, heldur einnig rammi sem opnar á nýjar leiðir til þess að skynja.