Búverk og horfnir tímar - bókaspjall með Bjarna - Eventa
Bókmenntir
Búverk og horfnir tímar - bókaspjall með Bjarna
Dagsetning
fimmtudagur, 12. nóvember
Tími
20:00
Um viðburðinn
Nú er jólabókaflóðið farið af stað og ekki seinna vænna en að kíkja hvaða bækur koma út í ár sem tengjast sveitum, landbúnaði og landnýtingu. Við byrjum á bókaspjalli með Bjarna Guðmundssyni sem gaf út í sumar bókina Búverk og horfnir tímar. Við ætlum að hittast í Skemmunni, heyra nokkur orð höfundar um efnið og eiga…
Staðsetning
Skemman Hvanneyri
Bókmenntir
Fim 12 nóv • 20:00
Búverk og horfnir tímar - bókaspjall með Bjarna
Skemman Hvanneyri
Nú er jólabókaflóðið farið af stað og ekki seinna vænna en að kíkja hvaða bækur koma út í ár sem tengjast sveitum, landbúnaði og landnýtingu. Við byrjum á bókaspjalli með Bjarna Guðmundssyni sem gaf út í sumar bókina Búverk og horfnir tímar. Við ætlum að hittast í Skemmunni, heyra nokkur orð höfundar um efnið og eiga notalega stund þann 12. nóvember.
Um bókina segir:
Bókin fjallar um verkfæri og verkhætti sem algengir voru fyrr á árum og fleira er tengist tæknivæðingu bústarfa og landbúnaðar. Flest af því er nú horfið eða hefur þróast að kröfum tímans.
Að sjálfsögðu verður í boði að kaupa bókina fyrir áhugasama og eru allir velkomnir! Frítt er á viðburðinn og frést hefur að safnstjórinn skelli jafnvel í eina sort!