Þýsk-íslenska viðskiptaráðið býður á morgunfund föstudaginn 16. maí kl. 8:45. Á fundinum mun Doris Grunert-Schächter nýr viðskiptafulltrúi Íslands í Þýskalandi ræða breytta stöðu í stjórnmálum og efnahagslífinu í Þýskalandi og tækifæri sem kunna að felast í nýju landslagi fyrir íslensk fyrirtæki. Further information in English: ENGLISH VERSION:
https://viskiptarslands.cmail19.com/t/t-e-gmljkt-l-t/Auðunn Atlason sendiherra í Þýskalandi og Baddý Sonja Breidert, stofnandi og framkvæmdastjóri 1xINTERNET tala einnig á fundinum, en þau verða staðsett í Þýskalandi. Vinsamlega skráið ykkur hér: Undanfarin ár hefur þetta stærsta hagkerfi í Evrópu staðið frammi fyrir margvíslegum áskorunum. Þýskaland hefur ekki farið varhluta af breytingum á alþjóðlegu viðskiptaumhverfi og auknum tollum inn í Bandaríkin. Þá hefur innrás Rússa í Úkraínu einnig haft talsverð áhrif Þýskalandi. Í kjölfar nýafstaðinna kosninga í Þýskalandi hefur ný ríkisstjórn boðað miklar breytingar. Boðuð hefur verið stóraukin fjárfesting í innviðum Þýskalands eða um 500 milljarðar evra. Lögð verður áhersla á að fjárfesta í stafrænum-, samgöngu- og orkuinnviðum.Fundurinn er kjörið tækifæri til að hitta nýjan viðskiptafulltrúa og ræða möguleg tækifæri í Þýskalandi. Fundarstaður: Hús Atvinnulífsins, Borgartún 35.Fundartími: 16. maí klukkan 8:45 til 9:45.Fundurinn fer fram á ensku