Blóm eru fjölbreytt að lit, ilmi og lögun, en hvernig tengjast þessir eiginleikar dýrunum sem heimsækja þau? Á þessum skemmtilega fjölskylduviðburði kynnumst við nánu sambandi blóma og frjóbera og fylgjum ferðalagi frjókornsins frá einu blómi til annars. Við uppgötvum líka hvernig þetta örsmáa korn gegnir mikilvægu hlutverki í myndun fræja og ávaxta – þar á meðal margra sem við borðum.
Teymi líffræðinga við Háskóla Íslands, undir forystu Judith Trunschke, leiðir gesti inn í fjölbreyttan heim blóma og frjóbera. Við skoðum hvað leynist inni í blómum, kíkjum á frjókorn í smásjá og spreytum okkur á að para saman blóm og frjóbera þeirra. Lifandi humlur og humlubú verða á staðnum og gestir geta brugðið sér í hlutverk frjóbera og búið til sín eigin blóm til að taka með heim.
Viðburðurinn fer fram á sýningu Náttúruminjasafnsins, Vatnið í náttúru Íslands, á 2. hæð Perlunnar.
Öll velkomin!
Aðgangur er ókeypis