Fjórir tónlistarmenn, með rætur í íslensku jaðar- og jazztónlistarlífi, sameinast í frumflutningi á plötunni Reykjavík Labyrinth – nýrri, hnitmiðaðri ferð um skáldað hugarástand borgarinnar í völundarkenndum spuna.Platan er afrakstur sameiginlegrar vinnu:Sölvi Kolbeinsson á saxófón og klarinett,Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa,Magnús Tryggvason Eliassen á trommur,og Ari Árelíus sem leikur á gítar og samdi verkið.Þrátt fyrir að tónsmíðarnar eigi sér einn höfund var öll útfærsla, hljóðheimur og framsetning mótuð í gegnum náið samspil hópsins – þar sem jafnvægi og sköpunarfrelsi ráða för.Reykjavík Labyrinth er vitnisburður um samhljóm, traust og sameiginlega sýn fjögurra radda í íslenskri jazztónlist.