Lúðrasveitin Svanur býður upp á ógleymanlega tónlistarveislu þar sem flutt verður tónlist úr mörgum af vinsælustu japönsku teiknimyndunum – bæði úr kvikmyndum og þáttum. Á efnisskránni má finna fjölbreytt úrval, allt frá ljúfum ballöðum yfir í kraftmikla bardagatónlist. Meðal höfunda eru stór nöfn eins og Joe Hisaishi og Yoko Kanno. Til að toppa Anime-stemninguna verður haldin bráðskemmtileg búningakeppni fyrir áhugasama. Allar upplýsingar um keppnina og skráningu má finna á svanur.is/buningakeppni. Auðvitað eru allir tónleikagestir hvattir til að mæta í búningi – hvort sem þeir ætla sér að taka þátt í keppninni eða ekki! Stjórnandi Svansins er Ella Vala Ármannsdóttir. Almennt miðaverð er 4900, en miðaverð fyrir 12 ára og yngri er 2900.