Næstkomandi fimmtudagskvöld mun Agnar Eldberg leika eðal tóna á Lebowski Bar og telur hann í kl.22:00. FRÍTT INN! Tuborg Classic á litlar 1.100 kr. frá 21:00-01:00 Agnar Eldberg er íslenskur tónlistarmaður og lagahöfundur sem hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi í yfir tvo áratugi. Hann hefur verið forsprakki nokkurra þekktra hljómsveita, þar á meðal Lights on the Highway, Klink og Bisund, sem allar hafa hlotið verðskuldaða athygli fyrir vandaða og tilfinningaríka rokktónlist. Árið 2023 hóf Agnar formlega sólóferil undir eigin nafni með útgáfu lagsins Gardening, sem fylgt var eftir af Nothing Comes to Mind sumarið 2024. Í október sama ár kom út lagið Stolin skip, sem vakti einnig athygli fyrir melankólískt yfirbragð og draumkennt hljóðheim. Öll eru þetta lög af fyrstu sólóplötu Agnars, sem er nú í vinnslu. Tónlist hans sem sólólistamaður spannar hráan hljóðheim þar sem folk, shoegaze og tilraunakennd rokkstemmning mætast í persónulegri og einlægri nálgun.