Laugardaginn 14. nóvember kl. 13-15 bjóða Hafnarborg og GETA upp á fjöltyngda smiðju þar sem þátttakendur kynnast indónesískri hefð við gerð klepon, sælgætis úr hrísgrjónadeigi sem fær á sig náttúrulegan grænan lit úr pandanlaufum og er fyllt með pálmasykri.
Smiðjan er leidd af listamönnunum Rainy Siagian og Anne Rombach. Þátttakendur koma saman við eitt langt borð og móta, fylla og fullelda sitt eigið klepon. Með því að útbúa mat saman gefst gestum tækifæri til að hittast, mynda tengsl og skapa eitthvað í sameiningu. Tungumál smiðjunnar eru hollenska, íslenska, enska og þýska.
Smiðjan fer fram á jarðhæð safnsins og er opin öllum aldurshópum. Engrar fyrri reynslu er krafist en börn skulu vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni. Hefðbundið indónesískt klepon er náttúrulega glútenlaust og vegan. Eins og alltaf er þátttaka í smiðjum sem og aðgangur að sýningum safnsins gestum að kostnaðarlausu.
Á mínu máli er viðburðaröð sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum. Viðburðurinn er samstarf Hafnarborgar og samtakanna GETU sem stuðla að inngildingu og jákvæðri fjölmenningu með fjölbreyttum viðburðum og félagsstarfi. Verkefnið er styrkt af safnasjóði.
Rainy Siagian (f. 1994) er listakona og fræðimaður, fædd í Indónesíu og uppalin í Belgíu, sem starfar nú bæði í Brussel og Reykjavík. Í þverfaglegri listsköpun sinni fæst hún við spurningar um rými, sjálfsmynd og það að tilheyra í gegnum ljósmyndun, texta, rýmislega nálgun og matargerð.
Anne Rombach nam ljósmyndun við Listaakademíuna í Leipzig í Þýskalandi og lauk MA-gráðu í myndlist auk diplómanáms í „Listum og velferð“ við Listaháskóla Íslands. Hún hefur staðið að fjölda listasmiðja í samstarfi sínu við samtökin GETU.