Hvað berum við með okkur sem byrjaði ekki hjá okkur?
Hvenær fannst þér síðast að þú værir nóg, nákvæmlega eins og þú ert?
Við lifum í heimi þar sem við erum stöðugt að gera kröfur til okkar sjálfra. Að gera meira, standa okkur betur, vera sterkari, duglegri og mæta væntingum annarra. En hvað ef þú þyrftir ekki að sanna neitt?
Þú ert nóg. Alveg eins og þú ert.
Sunnudaginn 15. nóvember bjóðum við þér í 9D öndunarferðalagið You Are Enough, sem snýst um sjálfsást, sjálfsmildi og að tengjast eigin verðmæti.
Í þessu ferðalagi færðu tækifæri til að:
✨ Skoða og sleppa takmarkandi hugmyndum um sjálfa/n þig
✨ Mýkja sjálfsgagnrýni og efasemdir um eigið virði
✨ Rækta sjálfsmildi, samþykki og sjálfsást
✨ Tengjast eigin styrk og því sem gerir þig einstaka/n
✨ Gefa tilfinningum rými og finna meiri innri ró
9D Breathwork er einstök öndunarupplifun þar sem öndun, tónlist, hljóðheimur og raddleiðsögn fléttast saman.
Þú liggur þægilega á dýnu með augngrímu og heyrnatól. Í heyrnatólunum leiðir rödd þig í gegnum öndunina, ásamt tónlist og leiðsögn sem minnir á blöndu af hugleiðslu og dáleiðslu. Þannig geturðu lokað á umhverfið og sökkt þér inn í þitt eigið ferðalag.
Æfingin tekur um 74 mínútur og inniheldur virka öndun, öndunarhöld og tilfinningalega tjáningu áður en hún endar á rólegum kafla.
Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og upplifun hvers og eins er ólík.
Skráning og upplýsingar:
📅 Sunnudagur 15. nóvember 2026 kl. 14:00
📍 Sjálfsrækt, Brekkugötu 3, 600 Akureyri
💛 Verð: 8.000 kr.
Sendu sms í síma 820-8455 til þess að skrá þig.
Skráning er staðfest með millifærslu:
Reikningsnúmer: 0123-26-087154
Kennitala: 020677-3769
Hlökkum til að taka á móti ykkur 🤍
Auja, 9D öndunarleiðbeinandi
Björk, Freyja, Martha og Gunnar
Athugið: Vinsamlegast hafðu samband við okkur áður en þú skráir þig ef þú ert með eða hefur sögu um hjarta- eða æðavandamál, blóðtappa, flogaveiki eða flogaköst, háan blóðþrýsting, hefur nýlega gengist undir aðgerð eða ert barnshafandi.