‼️ AÐGERÐIR FYRIR GAZA – STRAX! ‼️ Allur heimurinn sér að það sem Ísrael er að gera á Gaza er þjóðarmorð. Á meðan stjórnmálafólk afsakar aðgerðarleysi sitt, krefst almenningur aðgerða – og það strax. Við getum ekki látið orð og áskoranir duga til að eiga við ríki sem er að fremja hryllilegustu stríðsglæpi í áratugi. Við getum ekki látið eins og ekkert sé og tekið þátt í söngvakeppni við hlið ríkis sem fremur þjóðarmorð. Við getum ekki brugðist börnunum á Gaza sem eru nú svelt af Ísrael vikum saman ofan á það að vera sprengd, skotin eða gerð foreldra- og fjölskyldulaus. 📢 Samstöðuganga 17.maí kl.14:30: Við göngum frá bandaríska sendiráðinu við Engjateig 7, niður Laugaveg og á Austurvöll. 🎤 Á Austurvelli verður samstöðufundur þar sem Páll Óskar og Nadine Abu Arafeh flytja ávörp og fyrrverandi Eurovision-keppendur Íslands stíga á svið. 💥 Við erum fólkið. Mætum. Mótmælum. Stöndum með mannúð og réttlæti.